Erlent

Uppstokkun í Bretlandi

Hoon og hutton Varnarmálaráðherrann John Hutton og samgönguráðherrann Geoff Hoon sögðu báðir af sér embætti í gær. Þeir bættust þannig í hóp þingmanna og ráðherra Verkamannaflokksins sem sagt hafa af sér á síðustu dögum. fréttablaðið/ap
Hoon og hutton Varnarmálaráðherrann John Hutton og samgönguráðherrann Geoff Hoon sögðu báðir af sér embætti í gær. Þeir bættust þannig í hóp þingmanna og ráðherra Verkamannaflokksins sem sagt hafa af sér á síðustu dögum. fréttablaðið/ap

Breski forsætisráðherrann Gordon Brown ætlar ekki að segja af sér embætti. Sex ráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn hans á síðustu dögum. John Hutton varnarmálaráðherra og Geoff Hoon samgönguráðherra sögðu báðir af sér í gær. Afsagnir þeirra í gær komu í kjölfar afsagnar James Purnell atvinnumálaráðherra á fimmtudagskvöld. Áður höfðu Hazel Blears sveitarstjórnarráðherra og Jacqui Smith innanríkisráðherra sagt af sér ráðherradómi. Paul Murphy, ráðherra gagnvart Wales, hefur einnig sagt af sér.

Við afsögn sína hvatti Purnell forsætisráðherrann til að segja af sér embætti. Hann segir nauðsynlegt að hleypa nýju fólki að til að forðast algjöran ósigur Verkamannaflokksins í næstu kosningum. Hutton og Hoon lýstu hins vegar báðir yfir stuðningi við Brown. Nokkrir þingmenn og svokallaðir undirráðherrar hafa einnig sagt af sér á undanförnum dögum. Þeirra á meðal var Evrópuráðherrann Caroline Flint, sem sagði í afsagnarbréfi sínu að Brown hefði komið fram við hana og fleiri konur eins og skraut.

Verkamannaflokkurinn tapaði fylgi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru á fimmtudag. Flokkurinn missti meirihluta í þónokkrum héröðum, en bæði Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndir demókratar bættu við sig fylgi. Kosið var til Evrópuþingsins við sama tækifæri, en úrslit úr þeim kosningum verða ekki gerð opinber fyrr en á sunnudagskvöld.

Í kjölfar kosninganna gerði Gordon Brown forsætisráðherra viðamiklar breytingar á ríkisstjórn sinni, eins og búist hafði verið við. Alistair Darling fjármálaráðherra hélt embætti sínu, þrátt fyrir að hafa sætt mikillar gagnrýni undanfarið. Brown sagði á blaðamannafundi í gær að ósigurinn í kosningunum væri vissulega slæmur en hann og ríkisstjórn hans væru staðráðin í að halda áfram að þjóna þjóðinni fyrst og fremst. kjartan@frettabladid.is

thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×