Erlent

Fogh undirbýr evrukosningar

Anders Fogh Rasmussen
Anders Fogh Rasmussen
Anders Fogh Rasmus­sen, forsætisráðherra Danmerkur, stefnir að því að boða til nýrrar atkvæðagreiðslu um að Danir falli frá undanþágunni frá þátttöku í myntbandalag ESB og hinum undanþágunum þremur frá ESB-samstarfinu sem samið var um eftir höfnun Dana á Maastricht-sáttmálanum árið 1992.

Skilyrðið sem Fogh setur fyrir nýrri atlögu að því að koma Danmörku inn á evrusvæðið er að Sósíalíski þjóðarflokkurinn fáist til að styðja hana.

Rætt var um kosti og galla inngöngu í myntbandalagið á danska þjóðþinginu í gær. - aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×