Obama vill Kúbu inn úr kuldanum Óli Tynes skrifar 9. mars 2009 17:39 Barack Obama, forseti Bandaraíkjanna.
Breska blaðið The Guardian segir að Barack Obama ætli að nota ráðstefnu Ameríkuríkja sem haldin verður í vor til þess að draga Kúbu inn úr kuldanum. John F. Kennedy forseti setti viðskiptabann á Kúbu í febrúar árið 1962 eftir að Fidel Castro gerði upptækar eigur Bandaríkjamanna á eyjunni. Það hefur verið í gildi æ síðan. The Guardian segir að meðal annars verði ferðahömlum aflétt og hækkuð sú upphæð sem bandarískir kúbverjar geta sent fjölskyldum sínum. Þeir peningar eru líflína hundruða þúsunda fjölskyldna á Kúbu. Þá verður einnig hætt að krefjast þess að Kúba borgi fyrirfram fyrir alla matvöru sem keypt er frá Bandaríkjunum. Vestrænn diplomat á Kúbu segir að þessar og aðrar fyrirhugaðar breytingar muni hafa umtalsverð áhrif á líf almennra Kúbverja og bæta hag þeirra verulega. Ekki þarf þó að búast við að samskipti landanna verði eðlileg alveg á næstunni. Kúba er heitt pólitískt mál í Bandaríkjunum og hefur verið undanfarin 46 ár. Fræg eru orð Wayne Smith sem um tíma veitti forstöðu skrifstofu sem gætti hagsmuna Bandaríkjanna í Havana. Hann sagði; „Kúba hefur sömu áhrif á ríkisstjórn Bandaríkjanna og full tungl hefur á varúlfa."
Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Benz brann í Breiðholti Innlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Minnihlutinn mætir ekki á morgun Innlent Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Innlent Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Erlent Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Innlent Fleiri fréttir Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Segir klerkastjórninni að semja áður en það „verður of seint“ Yfirtaka Trumps á þjóðvarðliðinu dæmd ólögleg en hann heldur stjórninni Íranir séu vikum eða mánuðum frá kjarnorkusprengju Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba Æðstiklerkurinn hótar hefndum og drónaárásir eru hafnar Ísraelar gera árásir á Íran „Hann er ástæðan fyrir því að það er ótti“ Öldungadeildarþingmaður borinn út af blaðamannafundi Staðfesta 241 andlát og einn eftirlifanda Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Telur að enginn hafi komist lífs af úr flugslysinu Ísraelar sagðir undirbúa árásir á Íran Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Þota með á þriðja hundrað manns brotlenti í íbúðahverfi Fækka í sendiráðinu í Bagdad vegna öryggisógnar Púað á Trump í Kennedy Center og mótmælin breiðast út Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku Ró að færast yfir LA eftir fjögur hundruð handtökur Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Súdanar flýja undan sveitum Haftars „Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Þriggja daga þjóðarsorg í Austurríki „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Sjá meira