Erlent

Ísraelsher sakaður um að nota fosfórsprengjur

Tvær Palestínskar stúlkur leita skjóls í skóla Sameinuðu þjóðanna á Gaza.
Tvær Palestínskar stúlkur leita skjóls í skóla Sameinuðu þjóðanna á Gaza. MYND/Getty
Mannréttindasamtökin Human Rights Watch saka Ísraelsmenn um að nota vopn sem innihalda hvítt fosfór í árás sinni á Gaza ströndina. Samtökin segja þetta vera hættulegt fólki sem býr í nágrenni átakanna.

Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að starfsmenn þeirra hafi orðið varir við notkun vopnanna í dag og í gær nærri Gaza borg og Jabalya flóttamannabúðunum. Ísraelsmenn virðist nota vopnin til að hylja átakavettvang með reyk.

Það er leyfileg notkun þeirra samkvæmt alþjóðasáttmálum, en óheimilt er að beita þeim gegn óbreyttum borgurum. Samtökin vara við því að fosfórið geti brennt niður hús og valdið skelfilegum brunum komist þeir það í snertingu við húð. Ýmis mannréttindasamtök hafa lengi barist fyrir því að vopnin verði bönnuð með öllu.

Ísraelsmenn viðurkenndu að hafa notað vopn sem innihalda efnið í Líbanon árið 2006 og Bandaríkjamenn gerðu það einnig í hernaði í Falluja borg í Írak árið 2004.

Ísraelsher vill ekkert gefa upp um hverslags vopnum þeir beita nú á Gaza strönd. Herinn segist einungis nota vopn sem eru leyfð samkvæmt alþjóðalögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×