Erlent

Skotar íhuga að hækka sakhæfisaldur í 12 ár

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Skoski þjóðarflokkurinn íhugar nú að leggja fram frumvarp um hækkun sakhæfisaldurs úr átta árum í tólf. Er það skref í átt að því fjórtán ára marki sem nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur krafist að Skotar geri að sakhæfisaldri en með hugtakinu er átt við þann aldur þegar unnt er að sækja viðkomandi til saka fyrir dómi.

Gagnrýnendur tillögunnar benda á að árlega séu tæplega 5.000 afbrot framin af börnum á aldrinum átta til ellefu ára en sakhæfisaldur í Skotlandi er sá lægsti í Evrópu að Írlandi frátöldu. Hér á landi miðast sakhæfi við 15 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×