Tvö ístungl í Kuiper-beltinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 31. mars 2009 08:21 Þetta er það sem gæti blasað við þeim sem næði að leggja leið sína til Kuiper-beltisins. Kannski ekki beint Þingvellir eða Öxará en tilkomumikið engu að síður.
Tvö tungl dvergplánetunnar Haumeu í Kuiper-beltinu svokallaða eru gerð úr ís eingöngu. Það þyrfti stórt glas til að rúma þessa ísmola. Stærra tunglið er á stærð við Ohio-ríki í Bandaríkjunum en það minna nálgast tvöfalda stærð Rhode Island. Þessir tveir risaísklumpar sveima kringum Haumeu og teljast fullgild tungl hennar þrátt fyrir að vera ekki úr burðarmeira efni en ís. Vísindamenn hafa gefið ísmolunum heitin Hi'iaka og Nakama og hafa með aðstoð Hubble-stjörnusjónaukans náð að greina yfirborð þeirra sem er gert úr kristölluðum ís. Þar sem bæði tunglin hafa hitnað og kólnað á víxl, að því er virðist án þess að þyngri efni í þeim leiti í átt að kjarna þeirra, draga stjörnufræðingar þá ályktun að þau séu gerð úr ís í gegn. Slíkt þykir óvenjulegt í Kuiper-beltinu sem er svæði í sólkerfinu með innri mörk sín nálægt braut Neptúnusar. Í beltinu hafa fundist um 800 hlutir, þar á meðal Plútó og tungl þess Karon, sem nefnt er í höfuðið á ferjumanninum alræmda í grísku goðafræðinni en hann ferjaði hina dauðu yfir fljótið Akkeron og til undirheimanna. Útreikningar sýna að í Kuiper-beltinu megi finna hluti á stærð við Mars og jörðina. Ekkert smáræði sem sagt.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira