Eyddu milljón í eitt sælgætisbréf Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 20. júní 2009 18:16 Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Breska unglisstúlkan Larissa Wilkinson slapp með skrekkinn þegar dómari bjargaði henni frá að greiða 75 punda sekt, andvirði tæplega 16.000 króna, fyrir að henda rusli út um bílglugga. Raunar gerði dómarinn gott betur en það - hann hellti sér yfir saksóknarann í málinu. Larissa hafði að eigin sögn lent í því að sælgætisbréf í bílnum hennar fauk út um gluggann án þess að hún fengi við ráðið. Opinber starfsmaður varð vitni að því og Larissa fékk því ofangreinda sekt senda heim til sín. Larissa ákvað að borga ekki sektina. Henni fannst hún ósanngjörn og hafði takmarkaðar tekjur til að standa af henni straum. Yfirvöld ákváðu því að fara með málið fyrir dóm. Það var svo fyrir dómi sem dómarinn Roger Scott stöðvaði málið. Hann sagði afar illa farið með skattfé að draga stúlkuna inn í dómsal fyrir það eitt að missa rusl út úr bíl, en kostnaður vegna málsins er talinn vera um fimm þúsund pund, andvirði um milljónar króna. „Þetta er mest óviðeigandi málshöfðun sem ég hef nokkru sinni séð og stórkostleg sóun á fé útsvarsgreiðenda," sagði dómarinn. Að lokinni afgreiðslu málsins sagðist dómarinn vona að stúlkan hefði átt góðan dag í réttarsalnum og sleppti henni við sektina. Stúlkan var að vonum afar ánægð með dómarann sem málinu var úthlutað. Greint var frá þessu á fréttavef The Sun.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira