Kapítalismi getur lært af búddisma Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. júlí 2009 07:39 MYND/AP
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, telur kapítalismann geta lært heilmikið af búddisma. Leiðtoginn gerir kapítalismann, eða auðvaldsstefnuna, að yrkisefni sínu í nýútkominni bók sem ber titilinn Vegur leiðtogans eða The Leaders Way. Þar bendir hann meðal annars á að bæði viðskiptalífið og búddisminn gangi út á að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Enn fremur bendir sá gamli á að góðar fyrirætlanir, kyrr hugur og vitundin um að ekkert endist að eilífu séu grundvöllur hvors tveggja, viðskiptanna og búddismans, en undirtónninn beggja megin sé frelsi og fjölbreytileiki. Þá játar Dalai Lama í bókinni að hann hafi aldrei náð að skilja kommúnismann algjörlega fyrr en hann átti fund með Mao Tse-tung heitnum, aðalritara kínverska kommúnistaflokksins þar til 1976 þegar Mao lést en það átti reyndar ekki að geta gerst samkvæmt kínverskri speki. Eins og kapítalismi og búddismi eru ólíkar stefnur fullyrðir Dalai Lama í bókinni að heilmargt sé líkt með þeim og kapítalisminn þurfi að tileinka sér grundvallarkennisetningar búddismans ætli hann sér að verða tekinn alvarlega. Með góðum vilja mætti sennilega færa rök fyrir þessu, til dæmis er kennisetning Miltons Friedman um að hádegisverðurinn sé aldrei ókeypis með hálf-búddískum undirtón ef grannt er skoðað.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira