Þrumuguð velgir innbrotsþjófi undir uggum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. janúar 2009 08:14 Eins og ráða má af þessari mynd hefur það ekki verið neitt grín að mæta Torvald Alexander um niðdimma nótt. MYND/Kent News and Pictures
Innbrotsþjófur í Edinborg í Skotlandi lagði á flótta þegar húsráðandi kom heim af grímudansleik, dulbúinn sem þrumuguðinn Þór. Þór er samkvæmt Snorra-Eddu þekktastur fyrir að berja á tröllum og þursum í Austurvegi með hamri sínum Mjölni. Hvorki var það þó tröll né þurs sem stóð fyrir framan skrifborð á heimili byggingarverktakans Torvalds Alexander og skimaði eftir verðmætum. Þar var um ósköp venjulegan innbrotsþjóf að ræða. Alexander var hins vegar ekki í sínum hefðbundna vinnufatnaði þar sem hann var að koma heim af grímudansleik um miðja nótt. Hann var klæddur sem Þór þrumuguð, með hjálm prýddan silfruðum hornum og sveipaður síðri rauðri skikkju. Auk alls þessa er maðurinn tæpir tveir metrar á hæð og hefur því að líkindum verið heldur óárennilegur í myrkrinu. Þjófurinn sá enda sitt óvænna og fleygði sér felmtri sleginn út um næsta glugga, sem reyndar var á jarðhæð, og skildi skóna sína eftir í óðagotinu en úr þeim hafði hann farið til að síður heyrðist til hans. Þrumuguðinn og byggingarverktakinn skoski segir að væntanlega hugsi kauði sig tvisvar um næst áður en hann brýst inn til norrænna goða.
Mest lesið Ekkja hins látna: „Hann var enginn barnaperri“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent Alvarlegt hversu mörg börn skorti samkennd Innlent Ísland gat ekki gert losunarmarkmið ESB að sínu Innlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn stærstur í borginni Innlent Ríkið braut á konu með því að láta mál hennar fyrnast Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent Fleiri fréttir Flúði þungvopnaður eftir að hafa myrt tvo lögregluþjóna Stefna búi Epsteins og vilja afmælisbókina Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Sjá meira