Erlent

Spennan eykst á Kóreuskaganum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hersýning í Pyongyang í Norður-Kóreu.
Hersýning í Pyongyang í Norður-Kóreu.
Árlegar heræfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu hófust í morgun í Suður-Kóreu og lýsti herforingjastjórn Norður-Kóreu því yfir að æfingarnar væru ekkert annað en ögrun við Norður-Kóreumenn og hefði viðbúnaðarstig hers Norður-Kóreu verið aukið til samræmis við það. Eins lýsti stjórnin því yfir að litið yrði á það sem stríðsyfirlýsingu ef eldflaugar Norður-Kóreu yrðu skotnar niður í tilraunaskotum sem standa fyrir dyrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×