Erlent

Þróa nýja krabbameinsmeðferð

Eftir 30 ára þrotlausar tilraunir hefur læknum hefur tekist að finna leið til þess að fá ónæmiskerfið til þess að berjast gegn krabbameini. Á vef AP fréttastofunnar kemur fram að nýja leiðin sé kölluð krabbameinsbólusetning, þótt aðferðin sé notuð til þess að lækna krabbamein en ekki hindra þróun þess. Læknar segja að eitt af slíkum bóluefnum, sem er þróað af Biovest International Inc, sé mun öflugara en hefðibundin lyf sem notuð eru. Frá þessum niðurstöðum var greint á krabbameinsráðstefnu í Orlando sem haldin var í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×