Erlent

Ban Ki-moon til Gaza

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ban Ki-moon.
Ban Ki-moon. MYND/AP

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir Gaza-svæðið í dag og skoðar ummerkin eftir heiftarlegar árásir Ísraelsmanna sem hófust í lok desember og urðu rúmlega 1.300 Palestínumönnum að bana.

Ban fer einnig til Suður-Ísraels á ferðalagi sínu en þar gerðu liðsmenn Hamas-samtakanna eldflaugaárásir. Að sögn Hamas eyðilögðust 5.000 heimili, 16 opinberar byggingar og 20 moskur á Gaza-svæðinu í árásum Ísraelsmanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×