Erlent

Vilja nefna heilbrigðiskerfið í höfuðið á Kennedy

Ted Kennedy.
Ted Kennedy.
Ríkisstjórn Barack Obama íhugar alvarlega að nefna fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiskerfinu í höfuðið á Edward Kennedy, öldungadeildarþingmanns Demókrataflokksins en hann lést fyrir stuttu.

Ástæðan fyrir því að menn velti þessu alvarlega fyrir sér er af tvenns konar. Annarsvegar vegna þess að Kennedy barðist sjálfur ötullega fyrir breytingum á bandaríska heilbrigðiskerfinu á meðan hann var þingmaður. En einnig verður nafn hans hugsanlega notað til þess að auka stuðning við frumvarpið en Kennedy var gríðarlega vel liðinn sem þingamaður.

Heilbrigðiskerfið yrði þá kallað Kennedycare. Reyndar var þingmaðurinn ávallt kallaður Teddy af vinum sínum og nánustu, því væri hægt að stytta nafnið í Teddycare.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×