Ekki mannvonska sem ræður lokun öldrunarheimilis Hafsteinn Gunnar Hauksson365 skrifar 14. júlí 2009 09:55 Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA. „
Það er ekki mannvonska sem ræður," segir Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnun Austurlands, um lokun öldrunarheimilisins á Djúpavogi í gær. Eins og Vísir greindi frá var aðstandendum vistmanna greint frá því að þeir gætu ekki snúið aftur á heimilið eftir sumarlokun þess. Stofnuninni yrði tafarlaust lokað vegna fjárskorts. „Það er enginn glaður með þessa niðurstöðu, hvorki við né aðrir," segir Einar. Í fréttatilkynningu sem Einar sendi fjölmiðlum í gær kemur fram að til hafi staðið að HSA mundi reka öldrunarheimilið út árið 2009. Hins vegar hafi ekki þótt forsvaranlegt endurráða fimm starfsmenn að loknum sumarleyfum til að sinna aðeins tveim vistmönnum, en ekki var búist við að fleiri sneru aftur úr sumarleyfinu. Þar kemur jafnframt fram að aðsókn að heimilinu hafi minnkað talsvert frá því að HSA tók við rekstri þess í ársbyrjun 2008. Aðspurður hvort honum hafi þótt heppilegt að kynna vistmönnum og aðstandendum þessa ákvörðun þegar það var á leiðinni út úr dyrum í sumarleyfi segir Einar: „Auðvitað er það ekkert heppilegt og eðlilegt að það hreyfi við fólki sem í hlut á. Það er hinn mannlegi þáttur." Aðstandendum voru ekki kynnt nein úrræði til frambúðar fyrir ástvini sína er þeim var sagt frá lokun heimilisins. Einar segir þó unnið að undirbúningi úrræða fyrir þá tvo sem snúa til baka að loknu sumarleyfi. Enn eigi eftir að kynna þau úrræði fyrir vistmönnunum. „Það er ekki búið að klára það mál. Við höfum sex vikur til þess og munum leysa það á þeim tíma," segir Einar og bendir á að stofnunin reki fleiri heimili með mjög góða þjónustu og geti því boðið upp á skjól.
Tengdar fréttir Vistmönnum úthýst af elliheimili „Ekki veit ég hvert hún móðir mín fer. Hún er heimilislaus eins og er, ég get ekki skilið annað," segir Guðbjörg Stefánsdóttir, en móðir hennar bjó að öldrunarheimilinu á Djúpavogi. Þegar Guðbjörg sótti móður sína í sumarfrí var þeim mæðgum tjáð að hún ætti ekki afturkvæmt. Öldrunarheimilinu yrði lokað vegna fjárskorts. 13. júlí 2009 17:29 Mest lesið Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Innlent Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi að nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Sjá meira
Vistmönnum úthýst af elliheimili „Ekki veit ég hvert hún móðir mín fer. Hún er heimilislaus eins og er, ég get ekki skilið annað," segir Guðbjörg Stefánsdóttir, en móðir hennar bjó að öldrunarheimilinu á Djúpavogi. Þegar Guðbjörg sótti móður sína í sumarfrí var þeim mæðgum tjáð að hún ætti ekki afturkvæmt. Öldrunarheimilinu yrði lokað vegna fjárskorts. 13. júlí 2009 17:29