Sýn hinnar hagsýnu húsmóður 14. desember 2009 12:22 Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Kynjakvóti, sem kveður á um að í stjórnum 350 stærstu fyrirtækja landsins eigi hlutfall kvenna að vera minnsta kosti 40%, getur orðið að lögum fyrir jól. Það á að innleiða sýn hinnar hagsýnu húsmóður inn í íslenskt atvinnulíf, segir þingmaður Samfylkingarinnar. Viðskiptanefnd barst tilskipun frá Evrópusambandinu þar sem mælst er til þess að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast í stjórnum fyrirtækja. Viðskiptanefndin vildi ganga lengra og fer nú hina norsku leið. Hún felur í sér að hlutfall hvors kyns í stjórnum fyrirtækja sem eru með fleiri en 50 starfsmenn megi ekki vera minna en 40%. Þetta á bæði við um hlutafélög og einkahlutafélög. Málið hefur verið afgreitt úr nefnd og verður dreift á Alþingi nú í vikunni. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar, vonast til að þetta verði að lögum fyrir jól. „Þegar við tökum öll fyrirtæki í landinu þá eru 15% stjórnarmanna konur. Ef þú skoðar bara þau fyrirtæki sem hafa verið stofnuð frá hruni þá er þetta hlutfall kvenna komið niður í 11%. Það er þróun sem er ekki fýsileg og við viljum bregðast við," segir Magnús Orri. Í tillögunni hafa fyrirtæki frest fram til 1. september árið 2013 til að uppfylla kynjakvótann. Þá kemur til greina að beita þau fyrirtæki sem ekki hafa gert það sektum. Magnús Orri segir að það sé mat Alþingis að þegar fyrirtæki sé komið með yfir 50 starfsmenn þá sé það komið í hóp stærstu fyrirtækja landsins. „Það er til hagsbóta fyrir endurreisn atvinnulífsins að konur komi að stjórnun fyrirtækja. Það kom svo bersýnilega í ljós á Íslandi á undanförnum árum að við gerðum fjölmörg mistök við stjórn okkar lykilfyrirtækja. Allar rannsóknir hafa sýnt að ef að konur koma að stjórnun fyrirtækja þá er þeim fyrirtækjum betur stjórnað," segir þingmaðurinn. Magnús Orri segir að innleiða verði sýn hinnar hagsýnu húsmóður inn í íslenskt atvinnulíf.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira