Minntust flóttans mikla eftir 65 ár Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. mars 2009 08:24 Hermennirnir gömlu koma saman við göngin Harry þar sem minnisvarði um flóttann hefur verið reistur. MYND/Telegraph
Hópur breskra hermanna minntist þess í gær að 65 ár voru liðin frá flótta þeirra úr fangabúðum Þjóðverja í Póllandi. Flestir þeir sem komnir eru yfir þrítugt minnast án efa kvikmyndar John Sturges, The Great Escape, frá 1963, þar sem Steve McQueen, Charles Bronson og fleiri góðir menn fóru á kostum sem hópur hermanna í þýskum fangabúðum í Zagan í Póllandi. Mennirnir grófu þrenn göng sem hlutu viðurnefnin Tom, Dick og Harry og tókst 76 stríðsföngum að flýja búðirnar með því að skríða tæpa 120 metra gegnum göngin Harry og hverfa í skóglendi nálægt búðunum aðfaranótt 25. mars 1944. Flestir náðust flóttamennirnir þó aftur og Hitler fyrirskipaði að 50 þeirra skyldu teknir af lífi öðrum stríðsföngum til viðvörunar. Þeir fáu úr hópnum sem enn lifa komu saman við op flóttaganganna í Póllandi í gær, kveiktu á kertum og minntust fallinna félaga. Frank Stone frá Derbyshire í Bretlandi segir í viðtali við Telegraph að hans hlutverk hafi meðal annars verið að losna við jarðveginn sem varð til við gröftinn og það hafi verið erfiðasta verkefni hans í lífinu. Hann sagði einnig að atriðið í myndinni þar sem einn fanganna reynir að klifra yfir girðingu en er skotinn til bana af vörðunum hafi verið byggt á raunverulegu atviki. „Þetta voru allt úrvalsmenn," sagði Stone.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira