Erlent

Dómur hafnar kröfu fríríkisins

Í vörn Kristjaníubúar reyna að varna því að ríkið taki svæðið aftur yfir.
Í vörn Kristjaníubúar reyna að varna því að ríkið taki svæðið aftur yfir.

Eystri landsréttur í Danmörku hefur nú úrskurðað að fríríkið Kristjanía hafi ekki landnýtingarréttinn á svæðinu þar sem fríríkið stendur.

Kristjanía var stofnuð árið 1971 þegar hippar byrjuðu að hafast við í gamalli herstöð.

Nú hefur dómstóllinn gefið út að það hafi ekki verið leyfilegt. Hann hefur því vísað frá kröfu fríríkis­ins um að stjórnvöld skuli láta af áætlunum sínum um að endurheimta landsvæðið. Forsvarsmenn Kristjaníu hyggjast áfrýja málinu til hæstaréttar. Deilur hafa staðið um svæðið síðan 2004. - hds




Fleiri fréttir

Sjá meira


×