Rannsókn hafin á flugslysinu í Montana 23. mars 2009 12:17 Frá vettvangi. MYND/AP
Sautján manns flest börn fórust með einshreyfils flugvél sem hrapaði í lendingu í Montana í Bandaríkjunum í dag. Gott skyggni var og hæg gola þegar slysið varð. Rannsókn er hafin á hvað olli slysinu. Þá fórust tveir flugmenn fragtflugvélar sem varð alelda í lendingu á Narita flugvelli í Tokyo. Vélin sem fórst í Bandaríkjunum var stór einshreyfils skrúfuþota af gerðinni Pilatus PC-12. Hún var að því er talið er að flytja börnin frá Kaliforníu á skíðasvæði í Montana. Samkvæmt fréttum á slysstað voru alls sautján um borð í vélinni. Það vekur athygli þar sem þessar vélar hafa aðeins sæti fyrir níu farþega og einn eða tvo flugmenn. Flugvélin var að koma inn til lendingar í Butte í Montana þegar hún allt í einu steyptist lóðrétt til jarðar og kom niður í kirkjugarði um 150 meta frá enda flugbrautarinnar. Vélin sprakk í tætlur og mikil eldsúla reis til himins. Starfsmaður á flugvellinum í Kaliforníu þaðan sem vélin fór segir að börnin hafi verið á aldrinum 6-10 ára. Gott skyggni var og hæg gola þegar slysið varð. Í Tokyo voru hinsvegar sviptivindar þegar þriggja hreyfla breiðþota af gerðinni MD-11 brotlenti á Narita flugvelli. Þetta var fragtvél og aðeins tveir flugmenn um borð. Á myndum af slysinu virðist vélin lenda mjög harkalega á aðal-hjólabúnaðinum. Hún hendist hátt á loft aftur og skellur síðan niður á nefið af miklum þunga. Hún veltist til vinstri og vinstri vængurinn brotnar af. Vélin þeytist svo í miklu eldhafi niðureftir brautinni þartil hún staðnæmist rétt til hliðar við hana. Báðir flugmennirnir létu lífið.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Fleiri fréttir Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Sjá meira