Erlent

Mladic í felum í Belgrad

Óli Tynes skrifar
Ratko Mladic.
Ratko Mladic.

Serbneska blaðið Press segir að Ratko Mladic hafi í mörg ár verið í felum í íbúð í Belgrad.

Blaðið segir að hann sé í sambandi við aðeins einn mann sem færi honum mat og lyf eftir þörfum. Lögreglan sé nú að rannsaka þetta mál.

Ratko Mladic var hægri hönd Radovans Karadzic leiðtoga Bosníuserba. Karadzic var handtekinn fyrir nokkrum mánuðum og svarar nú til saka fyrir alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi.

Raunar svarar hann ekki til saka þar sem hann neitar að lýsa yfir sekt eða sakleysi fyrir dómstólnum sem hann segir að hafi enga lögsögu í sínu máli.

Af fjölmörgum ódæðisverkum Serba í stríðinu bar hæst fjöldamorðin á um áttaþúsund múslimum í Bænum Srebrenica.

Ratko Mladic mun ganga erfiðlega að sverja af sér þann verknað. Það eru til margar sjónvarpsmyndir sem sýna að hann var á vettvangi og stjórnaði öllum aðgerðum persónulega.

Hann sést meðal annars færa börnum sælgæti og fara um borð í rútur til þess að segja fólkinu að það verði flutt á öruggan stað.

Það var hinsvegar flutt á afskektan stað þar sem aftökusveitirnar biðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×