Tugir barna hafa látið lífið á Gaza 4. janúar 2009 18:59
Harðir bardagar hafa geysað á Gazaströndinni síðasta sólarhring og er manntjón mikið. Tugir barna hafa látið lífið frá því átökin hófust fyrir níu dögum. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til nauðstaddra og fer ástandið sífellt versnandi. Ísraelsher réðist yfir landamæri Gaza á fjórum stöðum í gærkvöldi eftir miklar loft- og stórskotaliðsárásir. Innrásin beinist fyrst og fremst að norðurhluta Gaza þar sem Hamasliðar hafa komið fyrir eldflaugaskotpöllum. Hörðustu átökin hafa átt sér stað við bæina Jebalía og Beit Lahía en meginstyrkur Ísraelshers hefur beinst að Gazaborg sem nú er umkringd. Óljósar fréttir hafa borist af mannfalli. Ísraelsmenn segjast hafa fellt að minnsta kosti 32 hamasliða en einn hermaður hefur látið lífið. Þetta hafa talsmenn Hamasliðar ekki viljað staðfesta. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til nauðstaddra og fer ástandið sífellt versnandi. Fjölskyldur sitja innilokaðar í húsum sínum á meðan bardagar geysa útifyrir. Að minnsta kostir þrjátíu almennir borgarar hafa látið lífið og mun fleiri hafa særst í átökunum. Fjölmörg ríki hafa fordæmt innrás Ísraelsmanna. Þar á meðal Norðmenn og Svíar. Í yfirlýsingu sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sendi frá sér í dag er innrás Ísraelshers á Gazaströndina fordæmd. Þar segir að innrásin geti aldrei annað en beinst að saklausum og varnarlausum íbúum sem hafa skipulega verið sviptir aðgangi að nauðþurftum.
Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Skjálfti við Húsavík Innlent „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður að virkilega góðum dreng“ Innlent Fleiri fréttir Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Sjá meira