Bretar flytja inn asísk skordýr til illgresisáts Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. júlí 2009 08:07 Þetta er aphalara itadori, ránskordýr sem spænir í sig jurtina fallopia japonica. MYND/PA
Bretar íhuga nú að flytja inn skordýr frá Asíu og láta þau éta japanska illgresisplöntu sem er að verða plága hjá breskum garðyrkjumönnum. Jurtin sem farin er að gera Bretum lífið leitt er japönsk að uppruna og gengur undir latneska heitinu fallopia japonica. Bretar kalla hana hins vegar knotweed og eru ekki par sáttir þar sem illgresi þetta, sem einna helst líkist bambus í útliti, murkar lífið úr flestum öðrum gróðri í nágrenni sínu með því að ræna hann næringu og bókstaflega éta laufblöð hans. Sérfræðingar telja að kostnaðurinn við að uppræta innrásarplöntuna í Bretlandi hlaupi á milljörðum punda. Snjallir vísindamenn hafa hins vegar komist að því að í Asíu býr skordýr nokkurt sem þykir gott að gæða sér á fallopia japonica-plöntunni og með því að flytja inn gott hlass af kvikindinu megi væntanlega hindra frekari útbreiðslu plöntunnar á breskri grundu og vonandi þurrka hana gjörsamlega út. Þessu telur Dick Shaw hjá landbúnaðarrannsóknarstofnun Bretlands að megi koma í kring á um það bil ári og geti skordýrin hafið át sitt næsta sumar eða svo. Ekki er ólíklegt að þessari áætlun verði hrundið í framkvæmd enda er fallopia japonica skaðræðisplanta sem náð getur rúmlega fjögurra metra hæð og brotið upp gangstéttir og hvaðeina.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira