Erlent

Óbreyttir borgarar strádrepnir á Sri Lanka

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Eldur logar í byggingu eftir stórskotaliðsárás stjórnarhersins í gær.
Eldur logar í byggingu eftir stórskotaliðsárás stjórnarhersins í gær.

Tæplega 380 óbreyttir borgarar létu lífið í árásum stjórnarhersins á Sri Lanka um helgina. Læknir á svæðinu segir marga hinna látnu vera börn og lík liggi eins og hráviði um allar jarðir. Hann metur það svo, að yfir 1.100 manns hafi særst í árásum stjórnarhersins en talsmaður hersins segir það hins vegar útilokað. Stjórnarherinn berst við uppreisnarmenn Tamíl tígra um yfirráð yfir héruðum sem aðskilnaðarsamtök Tamíla gera tilkall til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×