Erlent

Kúba fagnaði fimmtíu ára byltingarafmæli

Raoul Castro.
Raoul Castro.

Í gær var liðin hálf öld frá því að Fídel Castro og félagar náðu völdum á Kúbu. Tímamótunum var fagnað með hátíðarhöldum og hélt forseti landsins, Raoul Castro, ræðu á sama stað og bróðir hans Fídel fagnaði sigri byltingarsinna fimmtíu árum fyrr. Í ræðunni spáði Raoul því að byltingin muni vara í önnur fimmtíu ár.

Hátíðarhöldum hefur þó veið stillt í hóf enda glíma eyjarskeggjar við efnahagsþrengingar auk þess sem þrír fellibylir hafa leikið eyjuna grátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×