Erlent

Síðasti eftirlifandi Titanic farþeginn látinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Millvina var aðeins 9 vikna þegar Titanic fórst. Mynd/ AFP.
Millvina var aðeins 9 vikna þegar Titanic fórst. Mynd/ AFP.
Síðasti eftirlifandi farþeginn af Titanic lést í gær 97 ára að aldri. Elisabeth Gladys Dean, sem oft var kölluð Millvina, lést á hjúkrunarheimili nærri Southampton, en þar hafði hún dvalið í boði Leonardo Di Caprio og Kate Winslet, sem léku aðalhlutverkin í Titanic myndinni.

Millvina var yngsti farþeginn um borð í Titanic. Hún var 9 vikna gömul þegar skipið sökk í apríl árið 1912. Þar ferðaðist hún á þriðja farrými með foreldrum sínum og bróður. Faðir hennar fórst með skipinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×