Jákvæðar úrtölur hjá Parmigiani Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. janúar 2009 08:22 Úr að ofan? Parmigiani-úrin eru sögð hin mesta dvergasmíð.
Svissneski armbandsúraframleiðandinn Parmigiani kvíðir því ekki að hinir efnameiri hætti að kaupa sér úr þótt aðrir framleiðendur í sama bransa finni fyrir samdrætti. „Tíminn er eins og vatnið" orti Steinn Steinarr í víðfrægu ljóði sínu, Tímanum og vatninu, árið 1948 sem margir telja upphaf módernisma í íslenskri ljóðagerð. Hvort sem það er rétt eða ekki að tími sé eins og vatn vilja að minnsta kosti flestir fylgjast með tímanum og vita hvað honum líður. Þetta vita menn hjá Parmigiani í Sviss og þótt Audemars Piguet, Roger Dubuis og fleiri úrsmiðir kvarti yfir minnkuðum heimtum síðasta ársfjórðunginn segir Jean-Marc Jacot hjá Parmigiani engan bilbug vera á hans fólki að finna. Þvert á móti hafi salan þar á bæ aukist um 15 prósent frá áramótum. Jacot segist í samtali við Reuters ekki telja það líklegt að auðmenn heimsins breyti um lífstíl þótt skórinn kreppi víða í efnahagslífinu. Það komi auðvitað tímabil þar sem fólk sé hreinlega ekki í skapi til að kaupa hluti og það hafi einmitt verið það sem gerðist síðustu þrjá mánuði ársins 2008. Þetta sé allt spurning um skap en ekki skildingana. Hvað sem segja má um það eru úrin frá Parmigiani ekki eitthvað sem selt er á næstu bensínstöð. Innan við 5.000 úr eru framleidd ár hvert og meðalverðið á úri frá Parmigiani er litlar 7,3 milljónir króna.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés lávarður hlaut fjórðung atkvæða Erlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Farage sigraði en Ruslatunnufés lávarður hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Sjá meira