Persónuleiki ræður meiru við starfsval en menntun Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. júní 2009 08:09 Vinnudagurinn.
Hvort er yfirmaðurinn of harður eða starfsfólkið hreinlega bara latt? Ný áströlsk könnun veltir upp athyglisverðum punktum um vinnu og val á starfi. Það voru félagsvísindamenn við Háskólann í Vestur-Sydney sem könnuðu hvað býr að baki starfsvali, vinnupersónuleika og öðrum merkilegum vinnutengdum hlutum. Meðal þess sem könnun þeirra leiddi í ljós var að persónuleiki fólks ræður ótrúlega miklu um hvaða starfi það velst til að gegna ásamt þáttum á borð við erfðir og uppeldi. Þessir þættir hafa til dæmis mun meira að segja en menntun og fyrri reynsla á vinnumarkaði, segja aðstandendur könnunarinnar en einn þeirra er Robert Wells sem notaði þessa tilteknu könnun í hluta af doktorsritgerð sinni. Wells segir það nokkuð ljóst þegar við 12 ára aldur hvaða starfssvið fólk muni velja sér þegar það vex úr grasi. Hann segir mögulegt að draga fólk í dilka og velja því stöður eftir persónu. Þannig sé fólk í stjórnunarstöðum gjarnan tilbúnara en aðrir til að prófa nýja hluti auk þess sem því hætti til að vera sjaldan sammála öðru fólki. Afgreiðslufólk er afskaplega meðvitað en jafnframt opið fyrir reynslu en sölufólk á auðveldast með að vera sammála og samþykkja rök annarra. Könnunin náði til 20.000 manns á vinnumarkaði og skipti þeim í fimm grunnflokka. Upplýsingarnar eiga svo að koma að gagni við stefnumótun og mannaráðningar framtíðarinnar.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira