Erlent

Obama kynnir áætlun sína í heilbrigðismálum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun í dag kynna áætlun sína um uppstokkun á heilbrigðiskerfinu og reyna að vinna henni brautargengi. Obama segir að uppstokkunin, og framhaldsáætlun sem fylgir í kjölfar hennar, muni spara ríkinu hundruð milljarða dollara nái hún fram að ganga. Hann hefur boðið forkólfum bandarísku læknasamtakanna, samtaka bandarískra sjúkrahúsa, tryggingafélaga og fleiri heilbrigðistengdra samtaka og stofnana til kynningarinnar og vonast eftir jákvæðum undirtektum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×