Erlent

Undirrituðu bráðabirgðasamkomulag

Medvedev og Obama.
Medvedev og Obama. Mynd/ AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Dimitry Medvedev forseti Rússlands, hafa náð komist að bráðabirgðasamkomulagi um takmörkun kjarnorkuvopna á fundi sem stendur yfir í Moskvu milli leiðtoganna tveggja.

Bæði lönd miða að því að fækka sprengjuoddum sínum niður í 1.500-1.675 úr 2.200 en það er fjöldinn sem um ræðir í dag. Báðir leiðtogarnir skrifuðu undir yfirlýsingu þess efnis að minnka vopnabúr þjóða sinna.

Þessi yfirlýsing er ætluð sem nokkurskonar leiðarvísir fyrir samningamenn landanna en þjóðirnar stefna að því að ná nýju START vopnasamkomulagi en það sem er í gildi núna rennur út í desember.

Forsetarnir miða einnig að því að fækka eldflaugum niður í 500-1.100 en í dag má hver þjóð eiga um 1.600. Stefnt er að því að þessum markmiðum verði náð innan sjö ára.

Þá leyfir Rússland einnig Bandaríkjamönnum að fljúga með hersveitir og vopn yfir landhelgi sína á leið sinni til Afghanistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×