Múslimar ósáttir við reykingabann 28. janúar 2009 12:41 Indónesískar konur flokka tóbakslauf. MYND/Getty
Múslimar í Indónesíu eru æfir yfir trúarlögum sem æðstuprestar þar í landi settu um helgina á reykingar. Ulema-ráðið, æðsta trúarráð landsins setti fatwa-lög sem banna reykingar barna og þungaðra kvenna og reykingar á opinberum stöðum. Fatwa eru ekki eiginleg lög, en mikill þrýstingur er á trúaða að fylgja þeim því að öðrum kosti eru þeir syndugir. Almenningur í landinu er því ekki hress með bannið. Viðmælendur Reuters fréttastofunnar voru æfir, og sögðu reykingar ekki mál trúarleiðtoga. Veraldleg yfirvöld væru fullfær um að sinna þessum málum. Það hafa þau þó ekki verið. Reykingar á opinberum stöðum hafa verið bannaðar um nokkurt skeið í stærri borgum Indónesíu, en fáir virða þau lög. Heilbrigðisyfirvöld fagna banninu, en benda á að yfirvöld þurfi að gera meira ef að eitthvað á að draga úr reykingum í landinu, sem er fimmti stærsti markaður heims fyrir tóbak. Reykingar eru óvíða ódýrari en í Indónesíu, þar sem pakkinn kostar um 120 krónur, auk þess sem landið er frægt fyrir sterkilmandi negulsígarettur. Tóbaksframleiðendur eru eðli málsins samkvæmt ekki ánægðir með bannið. Milljónir manna starfa við tóbaksiðnaðinn í Indónesíu, sem veltir um átta milljörðum dollara á ári. Um tíu prósent af tekjum ríkisins koma frá skattlagningu á tóbak. Fjármálaráðherra landsins telur að dregið gæti úr sígarettuframleiðslu um 5-10 prósent á árinu.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Innlent „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Sjá meira