Fengu milljarða í arð vegna hlutabréfa sem bankinn fjármagnaði Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 10. júlí 2009 18:54
Starfsmenn Kaupþings fengu milljarða í arðgreiðslur frá bankanum vegna hlutabréfaeignar sem bankinn hafði sjálfur fjármagnað. Starfsmennirnir hafa nú fengið niðurfelldar persónulegar ábyrgðir á lánunum þrátt fyrir að hafa hagnast verulega á kaupunum. Kaupþing Búnaðarbanki varð til við sameiningu Kaupþings og Búnaðarbanka árið 2003. Strax á fyrsta aðalfundi hins nýja banka voru lagðar línurnar að því að starfsmenn gætu eignast allt að 9% í bankanum. Á næstu árum fór eignarhlutur starfsmanna vaxandi og var í ársreikningi bankans frá árinu 2007 komin upp í 7,8%. Arðgreiðslurnar fóru einnig vaxandi á þessum árum samvara því að bankinn stækkaði. Á árunum 2003 til 2007 voru arðgreiðslur til hluthafa tæpur 41 milljarður íslenskra króna. Þeir starfsmenn sem eignast höfðu hlut í bankanum fengu sinn hluta af þessum arðgreiðslum. Svo dæmi sé tekið fengu starfsmennirnir rúmar 800 milljónir í arðgreiðslur árið 2007. Þeir Hreiðar Már og Sigurður Einarsson fengu um 608 milljónir í arðgreiðslur á árunum 2006 og 7. Um 130 starfsmenn Kaupþings höfðu tekið lán hjá bankanum til hlutabréfakaupanna. Lögð var áhersla á að slíkar lánafyrirgreiðslur fælu ekki í sér persónulega áhættu fyrir starfsmenn og voru lánin oftar en ekki veitt með veði í bréfunum sjálfum. Rétt eftir hrun aflétti stjórn gamla Kaupþings persónulegum ábyrgðum á skuldum lykilstarfsmanna við bankann en lánin voru upp á samtals 50 milljarða króna. Starfsmennirnir sem höfðu tekið lán hjá bankanum til að kaupa hlutabréf og aldrei greitt krónu fyrir hirtu því milljarða í arðgreiðslur og hafa þar að auki fengið aflétt persónulegri ábyrgð á lánunum. Rétt er þó að taka það fram að starfsmenn Kaupþings greiddu tekjuskatt af kaupréttum á hlutum í bankanum.
Tengdar fréttir Engin lán verið afskrifuð Berghildur Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings vill koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttar Stöðvar 2 um arðgreiðslur til starfsmanna Kaupþings. 10. júlí 2009 21:01 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Sjá meira
Engin lán verið afskrifuð Berghildur Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings vill koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttar Stöðvar 2 um arðgreiðslur til starfsmanna Kaupþings. 10. júlí 2009 21:01