Þriðjungur þorir ekki að versla á Netinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. maí 2009 07:27
Þriðjungur breskra netnotenda þorir ekki að nota kreditkort til að versla á Netinu. Það var könnun bresku samkeppnisstofnunarinnar sem leiddi þennan sannleik í ljós en ný skýrsla stofnunarinnar fjallar meðal annars um kortanotkun á Netinu. Þessi þriðjungur treystir einfaldlega ekki nægilega á öryggi í kortanotkun sem fram fer á vefnum og segir John Fingleton hjá samkeppnisstofnuninni að þetta sé áhyggjuefni þar sem framtíðin hjá mjög stórum hluta smásöluverslana sé einmitt verslun á Netinu. Eigi markaðurinn að ná fullum vexti verði fólk að komast yfir óttann við að gefa kortaupplýsingar á Netinu. Þetta kemur þó ekki í veg fyrir það að Bretar eigi Evrópumet í verslun á Netinu en talið er að þeir versli þar tvöfalt meira en flestir nágrannar þeirra á meginlandinu. Traustið hefur þó aukist hröðum skrefum síðan árið 2006 en þá töldu aðeins 26 prósent þeirra sem versla á Netinu öryggið vera nægilegt. Þetta hlutfall er nú komið upp í 54 prósent og í fyrra versluðu Bretar fyrir tæpa 44 milljarða punda á Netinu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira