Erlent

Á þriðja tug létust í sjálfsvígsárás

Tuttugu og átta létust og fimmtíu og sjö særðust í sjálfsvígsárás á lögreglustöð í Baghdad, höfuðborg Írak, í morgun. Að sögn lögreglu var ódæðismaðurinn klæddur sprengjuvesti og á mótorhjóli sem var þakið sprengjuefni. Vettvangurinn var þannig að erfitt reynist að bera kennsl á líkin. Lögreglumenn hafa áður verið fórnarlömb slíkra árása í Írak, en í desember 2008 létust fimmtán lögreglumenn og fjörutíu og fimm særðust fyrir utan sömu lögreglustöð í Baghdad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×