Um 13.000 uppsagnir fram undan Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. júní 2009 08:17
Gert er ráð fyrir því að allt að 13.000 manns verði sagt upp störfum í breska fjármálageiranum á þriðja ársfjórðungnum. Það voru 17.000 manns sem misstu störf sín hjá breskum fjármálafyrirtækjum á fyrsta fjórðungi ársins, 15.000 á öðrum fjórðungi og nú er því spáð að 13.000 fái að fjúka á þeim fjórðungi sem nú er að hefjast. Þetta eru geysiháar tölur, jafnvel þótt um tugmilljónaþjóð sé að ræða, en samt sem áður dregur hægt og bítandi úr uppsögnum og hlutirnir virðast vera að þokast upp á við. Ian McCafferty, hagfræðingur hjá samtökum iðnaðarins í Bretlandi, segir að vissulega sé óvissan mikil en þó sé örlítið skárra veður í kortunum núna en oft áður. Útlitið sé auðvitað langt frá því að vera glæsilegt og banka- og fjármálakerfið enn mjög viðkvæmt fyrir nýjum áföllum en þó sé nokkur ástæða til bjartsýni. Baráttunni er þó langt í frá lokið og afkomutölur bankanna sýna að hagnaður þeirra hefur ekki verið minni síðan í mars 1991. Hagfræðingar spá því þó að þetta breytist á þeim ársfjórðungi sem nú fer í hönd og landið taki smátt og smátt að rísa. Samkvæmt nýrri könnun er bjartsýnin mest meðal breskra tryggingafyrirtækja en sú könnun náði til 73 fjármálafyrirtækja og var framkvæmd af samtökum iðnaðarins í Bretlandi. Innan samtakanna eru 240.000 fyrirtæki sem eru vinnuveitendur þriðjungs þeirra Breta sem starfa í einkageiranum.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Sjá meira