Enski boltinn

Chelsea náði ekki að notfæra sér tap United

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Modric og Aaron Lennon fagna hér marki þess fyrrnefnda.
Modric og Aaron Lennon fagna hér marki þess fyrrnefnda. Nordic Photos/Getty Images

Chelsea náði ekki nýta sér sigur Fulham á Man. Utd fyrr í dag. Chelsea sótti Tottenham heim á White Hart Lane og tapaði 1-0.

Það var Króatinn Luka Modric sem skoraði eina mark leiksins á 50. mínútu eftir undirbúning Aaron Lennons.

Leikurinn hófst hálftíma of seint þar sem grunsamlegur bíll fannst fyrir utan völlinn. Leikurinn var ekki flautaður á fyrr en ljóst var að enginn hætta stafaði af bílnum.

Þetta var fyrsta tap Chelsea í deildinni undir stjórn Guus Hiddink. Chelsea var ekki fjarri því að jafna og boltinn fór meðal annars í slána undir lokin en allt kom fyrir ekki.

Staðan í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×