Erlent

Rukkaði ríkið fyrir skattaskýrslugerð

Alastair Darling
Alastair Darling

Líkur á því að Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé á útleið hafa enn aukist eftir að dagblaðið Daily Telegraph upplýsti að hann sendi ríkisstjóði reikning fyrir að láta endurskoðanda gera skattskýrslu sína.

Á skattskýrslunni breytti hann jafnframt lögheimili sínu til þess að hækka hlunnindagreiðslur sínar. Stuðningur við ríkisstjórn Gordon Brown hefur hrunið eftir uppljóstranir Daily Mail undanfarnar vikur og er Verkamannaflokkurinn nú kominn niður fyrir Frjálslynda demokrata í skoðanakönnunum í fyrsta skipti í tuttugu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×