Líklegt að Darling verði látinn fjúka 1. júní 2009 12:01 Gordon Brown.
Gordon Brown segir að hann muni ekki láta af embætti forsætisráðherra Bretlands þótt stjórn hans sé rúin trausti. Hins vegar er líklegt að Alastair Darling fjármálaráðherra verði látinn fjúka. Útlit er fyrir að í kosningum til Evrópuþingsins síðar í vikunni falli Verkamannaflokkurinn niður í þriðja sæti á eftir Íhaldsflokknum og Frjálslyndum demokrötum. Það yrði í fyrsta skipti í tuttugu ár sem hann fer niður fyrir Frjálslynda. Í skoðanakönnun sem Daily Telegraph birti í gær ætluðu aðeins 17 prósent að kjósa Verkamannaflokkinn. Íhaldsmenn voru samkvæmt könnuninni með 29 prósent atkvæða og Frjálslyndir demokratar með tuttugu prósent. Þetta hríðfallandi fylgi má auðvitað rekja að einhverju leyti til kreppunnar. Aðallega er það þó vegna uppljóstrana Daily Telegraph um ótæplega sjálftöku þingmanna úr opinberum sjóðum. Raunar á það við þingmenn úr öllum flokkum en Verkamennirnir hafa reynst hvað djarftækastir á almannafé. Og þar sem þeir eru í ríkisstjórn hefur ábyrgðin verið lögð þyngra á þeirra herðar. Gordon Brown forsætisráðherra er þó ekkert á þeim buxunum að gefast upp. Hann sagði í samtali við BBC að það væri hans verk að greiða úr flækjunni, bæði að rétta Bretland af í kreppunni og að yfirhala stjórnkerfið. Hinsvegar er búist við að hann stokki upp í ríkisstjórninni á næstu dögum. Þá þykir nokkuð víst að Alastair Darling fjármálaráðherra verði látinn víkja. Bæði er það vegna ábyrgðar hans á fjármálaöngþveitinu og eins hefur komið í ljós að hann hefur verið óspar á að rukka hlunnindi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira