Barnslík fannst í bakpoka 1. júní 2009 22:30 Frá vettvangi MYND/Skynews
Maður og kona fundust látin á Englandi í gærkvöldi en talið er að þau hafi framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af háum kletti í Eastbourne, East Sussex. Bifreið sem talin er hafa verið í eigu þeirra fannst á klettabrúninni. Lögreglumaður sem kom að fólkinu sá að tveir bakpokar lágu í seilingarfjarlægð frá líkunum. Hann opnaði annan bakpokann og sá þá eitthvað sem hann hélt að væri höfuð af dúkku. Þegar hann gáði betur kom í ljós að þetta var höfuð af litlum dreng sem var inni í bakpokanum. Lík drengsins uppgötvaðist ekki fyrr en í morgun þegar unnið var að því að rannsaka vettvang. Lögregla rannsakar nú hvort fólkið hafi framið sjálfsmorð en miklar líkur eru taldar á að svo sé. Stuart McNab lögreglumaður kom á vettvang: „Ég var kallaður á vettvang í gærkvöldi en ákvað að klára þetta í morgun.Reynslan segir okkur að þeir sem falla þarna niður, á þessum stað, lifi ekki af. Við komum síðan á staðinn klukkan átta í morgun og ég hélt að það yrði formsatriði að klára þetta. Ég fór sjálfur niður klettinn og bar strax kennsl á konu og mann," segir Stuart. „Ég leit lauslega í kringum mig og tók eftir tveimur bakpokum. Þeir voru báðir lokaðir og voru skammt frá líkunum. Ég opnaði annan þeirra og leit inn í hann þar sem ég sá það sem ég hélt að væri höfuð af dúkku. Þegar ég skoðaði það betur áttaði ég mig á að þetta var höfuð af litlu barni. Í hinum bakpokanum voru leikföng, traktor og bangsar." Stuart segir að á þessum stað hafi nokkrir svipt sig lífi á undanförnum árum en það sé yfirleitt eldra fólk. „Það eina sem er sambærilegt þessu er atvik sem gerðist fyrir um tuttugu árum síðan. Þá keyrði einhver fram af klettinum með barn um borð í bílnum." Það er Daily Mail sem segir frá þessu í dag.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent