Erlent

Skotárás í Kaupmannahöfn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Tvítugur maður liggur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn eftir að hann fannst nálægt Kristjaníu með skotsár á hand- og fótlegg í morgun. Hann er ekki í lífshættu en lögregla hefur lokað stóru svæði í nágrenni við staðinn þar sem maðurinn fannst og vinnur að rannsókn málsins. Maðurinn segist hafa orðið fyrir skotunum inni í Kristjaníu og eru hugsanleg vitni í yfirheyrslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×