Vítisenglar flytja í glæsiíbúðir á Jótlandi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 15. júní 2009 08:11 Jørn Jønke Nielsen ræðir við fjölmiðla.
Æðstu menn Hells Angels í Danmörku eru fluttir í glæsiíbúðir í Randers á Austur-Jótlandi. Þær eru blendnar, tilfinningar íbúa Golfhúsanna svokölluðu í Randers, þegar nýju nágrannana ber á góma. Það eru nefnilega engir aðrir en þeir félagar Jørn Jønke Nielsen og Brian Sandberg, einir hæst settu menn Vítisenglanna í Danmörku, sem eru mættir í hverfið. Golfhúsin eru spánnýjar glæsiíbúðir sem hingað til hafa fyrst og fremst laðað til sín eldri borgara sem hyggja á ævikvöldið áhyggjulausa og þægilega golfiðkun. Þeir draumar virðast nú í uppnámi. Í viðtali við Berlingske Tidende segir íbúi, sem skiljanlega vill ekki láta nafns síns getið, að augljóst sé að nýir nágrannar séu mættir. Þetta sjáist á óvenjulegum fjölda manna með stór húðflúr sem aki um á stórum þýskum bílum. Einnig virðist einhvers konar öryggisgæsla tekin til starfa en þar sé um að ræða sveitir manna á vélhjólum sem aki reglulegar eftirlitsferðir um hverfið. Þeir Nielsen og Sandberg eru sagðir ætla að draga sig í bili út úr óöldinni í Kaupmannahöfn þar sem styrjöld ríkir milli Vítisenglanna og innflytjendaklíka. Lögreglustjóri á Austur-Jótlandi segir lögreglu þar nánast aldrei hafa séð þá félaga í umdæminu áður. Kannski eru þeir bara mættir í sveitina til að spila golf og safna kröftum.
Mest lesið Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Fleiri fréttir Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Sjá meira