Erlent

Í fangelsi fyrir að klæðast sem nunnur á Krít

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þessar fersku nunnur eru ekki þær sem hér greinir frá heldur breskir stúdentar að dimmitera.
Þessar fersku nunnur eru ekki þær sem hér greinir frá heldur breskir stúdentar að dimmitera.

Sautján Bretar sitja nú í fangelsi á grísku eyjunni Krít og bíða ákæru fyrir að klæða sig upp sem nunnur og valsa þannig um bæinn Hania sem er vinsæll ferðamannastaður. Grikkir eru ákaflega viðkvæmir fyrir glensi og gríni á kostnað rómversk-kaþólsku kirkjunnar og líta málið mjög alvarlegum augum. Heimildarmaður innan lögreglunnar, sem breska blaðið Telegraph ræddi við, sagði að fólkið yrði ákært og í framhaldinu líklega sektað. Hann taldi hins vegar ólíklegt að fangelsi biði þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×