Upptökur af samtölum Nixons opinberaðar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. júní 2009 08:14 Richard M. Nixon. MYND/Getty Images
Hljóðupptökur og skjöl frá seinna kjörtímabili Richards Nixon hafa verið birt almenningi í Bandaríkjunum. Þarna er um að ræða hvorki meira né minna en 30.000 blaðsíður af skjölum og 154 klukkustundir af upptökum þar sem hlusta má á samtöl Nixons við hina og þessa samstarfsmenn sína í Hvíta húsinu. Gögnin eru frá janúar- og febrúarmánuði árið 1973 og eru heilmikil heimild um það sem þá var efst á baugi í Bandaríkjunum. Forsetinn ræðir til dæmis um stríðið í Víetnam og stöðu friðarviðræðna við þarlend stjórnvöld, nýlegan og umdeildan dóm hæstaréttar Bandaríkjanna um rétt til fóstureyðinga, dauða Lyndons B. Johnson, fyrrverandi forseta, og síðast en auðvitað alls ekki síst Watergate-málið sem einu og hálfu ári síðar átti eftir að steypa Nixon af stalli. Auðheyrt er af mörgum samtalanna að Nixon er á þessum tíma enn að baða sig í dýrðarljóma forsetakosninganna 7. nóvember 1972 þar sem hann rúllaði gjörsamlega yfir demókratann George McGovern og hafði sigur í 49 ríkjum en þar var á ferðinni fjórði stærsti kosningasigur í sögu bandarískra forsetakosninga. Þá heyrist Nixon gefa skipun um að haldin verði ítarleg skrá yfir símtöl úr heimasíma Henrys Kissinger, helsta ráðgjafa Bandaríkjastjórnar í varnarmálum. Þessu biður hann Charles Colson, aðstoðarmann sinn, að koma í kring með aðstoð alríkislögreglunnar. „Það er allt sem við þurfum að vita, hvern í fjandanum hann hringir í,“ segir forsetinn af sinni kunnu ákveðni.
Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Góður fundur en fátt fast í hendi Erlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Fleiri fréttir Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Sjá meira