Upplýst umræða um ESB-aðild lykilatriði 25. maí 2009 03:00 Graham Avery
Að fram fari upplýst opinber umræða um það sem felst í fullri aðild að Evrópusambandinu er einhver mikilvægasta forsendan fyrir inngöngu nýrrar aðildarþjóðar í sambandið. Þetta segir Graham Avery, sem starfaði um áratugaskeið í framkvæmdastjórn ESB og kom sem háttsettur fulltrúi hennar að aðildarsamningum margra ríkja, en hann er nú heiðursfélagi St.Antony‘s College við Oxfordháskóla og ráðgjafi rannsókna- og ráðgjafarstofnunarinnar European Policy Centre í Brussel. Avery hélt á dögunum erindi á málþingi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, þar sem hann fjallaði um „hverju búast megi við af Brussel“ í aðildarviðræðum við ESB. Í erindinu lýsti hann aðildarviðræðuferlinu og lagði sitt mat á það hvernig sjá má fyrir sér að slíkar viðræður færu fram við Ísland. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Avery þess fullviss að unnt sé að gera góðan aðildarsamning sem tryggja myndi bæði hagsmuni Íslendinga og Evrópusambandsins í heild, að því gefnu að samningsviljinn sé jafnmikill hjá báðum aðilum. Avery segir þetta einnig eiga við um sjávarútvegsmál. Þar aðskilur hann annars vegar langtíma-meginmarkmið sameiginlegu fiskveiðistefnunnar, og hins vegar það hvernig þeim markmiðum skuli náð í framkvæmd. Eins og meginmarkmið stefnunnar séu skilgreind eigi hann bágt með að sjá að fiskveiðiþjóðin Íslendingar geti ekki skrifað upp á þau. Framkvæmd stefnunnar sé annað, og „í Brussel“ sé viðurkennt að hún þurfi nú endurskoðunar við, meira en nokkru sinni fyrr. „Við þá endurskoðun gætu Íslendingar lagt mikilvægan skerf af mörkum,“ segir Avery. Þar sem til stendur að bera væntanlegan aðildarsamning undir þjóðaratkvæði hérlendis segir Avery að það hvernig staðið er að hinni opinberu umræðu um samningsskuldbindingarnar sé algjört lykilatriði. Avery bendir á hve mörg dæmi eru um það frá öðrum löndum, þar sem þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar um Evrópusambandsmál, að í þeim hljómi hæst raddir sem útbreiði afbakanir á því sem í raun sé verið að kjósa um eða tengja það alls ótengdum málum. Þetta hafi til að mynda verið tilfellið þegar Írar kusu um fullgildingu Lissabonsáttmálans í fyrrasumar. Þetta þurfi Íslendingar að varast með því að auðvelda aðgengi almennings að traustum upplýsingum og vanda hina opinberu umræðu. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira