Erlent

Eigandi H&M kaupir breskt þorp

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Stefan Persson.
Stefan Persson.

Sænski milljarðamæringurinn Stefan Persson, eigandi tískuverslunarkeðjunnar H og M, hefur ákveðið að kaupa heilt þorp nálægt Hampshire á Englandi. Kaupverðið er 25 milljónir punda eða rúmir fimm milljarðar íslenskra króna. Í þorpinu er glæsivilla sem Persson mun halda til í, 21 íbúðarhús sem þorpsbúar leigja og í allt er svæðið rúmlega átta ferkílómetrar. Það var sett á sölu í mars og nú á bara eftir að undirrita kaupsamninginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×