Obama undirritar ný tóbakslög en reykir sjálfur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. júní 2009 07:27 Breska blaðið Telegraph birtir þessa mynd á vef sínum en lætur þess getið í myndatexta að líklegast hafi hún verið lagfærð eitthvað í þar til gerðum tölvuforritum. MYND/Telegraph
Barack Obama Bandaríkjaforseti undirritaði í vikunni lög sem heimila yfirvöldum að setja verulegar skorður við tóbaksframleiðslu. Hann er hins vegar ekki syndlaus. Nei, það er hann ekki. Obama fær sér nefnilega einn og einn líkkistunagla. Opinberlega hefur hann lýst því yfir að hann sé að berjast við að drepa í en eins og velflestir reykingamenn þekkja er það oft löng og ströng barátta og fátt auðveldara en að misstíga sig aðeins. Obama játar þetta fúslega. Hann segist ekki reykja dags daglega en hins vegar komi það mjög gjarnan fyrir að hann kveiki sér í einni, svona ef dagurinn er sérstaklega erilsamur. Hann hefur þá reglu að reykja ekki fyrir framan fjölskyldu sína en hann byrjaði upphaflega að reykja fyrir 18 ára aldur eins og 90 prósent reykingamanna gera. Nýju lögunum er einmitt ætlað að stemma stigu við þessu en þau gefa matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna heimild til að setja tóbaksframleiðendum stólinn fyrir dyrnar, bæði hvað varðar framleiðslu og markaðssetningu tóbaks. Þetta táknar að eftirlitið megi skipa framleiðendum að draga úr hvoru tveggja, framleiðslu tóbaks og tóbaksauglýsingum. Árlega deyja 440.000 Bandaríkjamenn af völdum reykinga en spurningin er hvort Obama hafi kveikt sér í einni eftir að hann skrifaði undir nýju lögin.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira