Erlent

Fimm handteknir á götuhátíð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fimm eru í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir að götuhátíð, sem haldin var undir Knippels-brúnni í nótt, fór úr böndunum. Lögregla þurfti að beita hundum og piparúða til að hafa stjórn á mannskapnum en um 150 gestir sóttu hátíðina og létu margir þeirra ófriðlega. Það tók lögreglu hátt á aðra klukkustund að ná stjórn á vettvangi og koma fólkinu í burtu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×