Rækta kýr sem ropa minna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. júní 2009 08:49 Kanadísk kýr í Manitoba. MYND/Reuters
Kanadískir vísindamenn vinna nú að því að rækta nýtt kúakyn sem ropar minna en þær hefðbundnu kýr sem nú tíðkast. Þetta er gert með umhverfissjónarmið að leiðarljósi en kýr eru ábyrgar fyrir þremur fjórðu hlutum af öllu því metangasi sem losað er í heiminum. Metangas hefur um það bil 20 prósentum meiri virkni sem gróðurhúsalofttegund en sjálfur koltvísýringurinn sem almennt er fyrstur nefndur sem sökudólgur hnattrænnar hlýnunar. Stephen Moore, prófessor við Alberta-háskólann í Edmonton, rannsakar nú hvaða gen í kúm hafa mesta þýðingu við metanframleiðslu þeirra og benda frumniðurstöður til þess að hægt sé að hanna kýr sem framleiða fjórðungi minna metangas en nú þekkist. Hefur Moore þegar birt grein um málið í Journal of Animal Science. Hann bendir þó á að kapp sé best með forsjá og hafa verði til hliðsjónar hver langtímaáhrif alls erfðafikts verði á kýrnar og getu þeirra til framleiðslu mjólkur. Í New Hampshire í Bandaríkjunum tókst kúabónda, sem framleiðir lífræna jógúrt, að draga úr metanframleiðslu kúa sinna um 12 prósent með því að bæta refasmára (lat. medicago sativa) út í fóður þeirra. Gerðu allir kúabændur Bandaríkjanna þetta jafngilti það því að hálf milljón fólksbíla væri tekin úr umferð segja þeir sem kynnt hafa sér málið.
Mest lesið Bylgja Dís er látin Innlent Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Erlent Opinbera bréf Trumps til Epsteins Erlent Ísraelar gera loftárásir á Katar Erlent Gestur Guðmundsson er látinn Innlent Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Erlent Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Innlent Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Verið ættleiddur af Íslendingum Innlent Fleiri fréttir Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Skipar strax nýjan forsætisráðherra Segja leiðtoga Hamas hafa lifað árásina af Kveikt í þinghúsinu og forsætisráðherrann hrökklast frá Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Ísraelar gera loftárásir á Katar Støre á vandasamt verk fyrir höndum eftir kosningasigur Svíar munu banna farsíma í grunnskólum frá næsta hausti Kosningaúrslit í Noregi: Störe fagnar sigri en Solberg mögulega á förum Mótmæla enn og þrír ráðherrar segja af sér Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Alþjóðakerfinu ekki viðbjargandi og þörf á aðlögun Segir danska kerfið þurfa að líta á Grænlendinga sem jafningja Opinbera bréf Trumps til Epsteins Vinstriblokkin með meirihluta í Noregi Þurfa að finna fimmta forsætisráðherrann á tveimur árum Biðlaði til stjórnarandstöðunnar á pólitískum dánarbeði sínum Mál úgandsks stríðsherra gæti haft þýðingu fyrir Pútín og Netanjahú Skutu mótmælendur til bana við þinghúsið í Nepal Sex látnir í skotárás Palestínumanna í Jerúsalem Fjórar ungar vinkonur fórust í eldsvoða í Noregi Boðað til mótmæla vegna vopnasýningar í Lundúnum Sveppamorðinginn í lífstíðarfangelsi í Ástralíu Treystir á afdráttarlaus viðbrögð bandamanna við árás helgarinnar Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Sjá meira