Erlent

Fyrrum ráðherra í Ísrael dæmdur 5 ára í fangelsi

Avraham Hirchson og Ehud Olmert.
Avraham Hirchson og Ehud Olmert. Mynd/AP
Fyrrverandi fjármálaráðherra Ísraels var í morgun dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir fjársvik og þjófnað. Avraham Hirchson var náinn pólitískur samstarfsmaður Ehuds Olmerts fyrrverandi forsætisráðherra og var ráðherra samgöngumála og síðan fjármála í ríkisstjórn hans.

Hirchson var sakfelldur fyrir að hafa stolið jafnvirði nærri 65 milljón krónum af verkalýðsfélögum sem hann var í forsvari fyrir áður en hann varð ráðherra. Hirchson er ekki eini ráðherrann í fyrrum ríkisstjórn Olmerts sem sætt hefur opinberri rannsókn.

Forsætisráðherrann fyrrverandi sagði af sér í fyrra vegna spillingarannsóknar sem enn er í gangi. Olmert hefur neitað sök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×