Íranir skutu háþróaðri eldflaug á loft 20. maí 2009 12:12 Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti. Mynd/AP
Íranar skutu í morgun á loft nýrri háþróaðri eldflaug sem dregur um 2000 kílómetra eða allt til Ísraels og bandarískra herstöðva við Persaflóa. Líklegt er að tilraunaskotið veki áhyggjur Vesturveldanna um hernaðarlegan metnað ráðamanna í Teheran. Um er að ræða eldflaug af gerðinni Sejil 2 sem hægt er að skjóta frá jörðu að skotmarki á jörðu nirði í allt að 2000 kílómetra fjarlægð. Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, tilkynnti um þetta í útvarpsávarpi í morgun. Nýja eldflaugin dregur þannig nærri jafn langt og önnur írönsk tegund eldflauga Shahab 3 sem áður hafa verið gerðar tilraunir með. Nýja eldflaugin getur þannig náð til skotmarka í Ísrael og herstöðva Bandaríkjamanna við Persaflóann. Tilraun var gerð með eldri útgáfu Sejil eldflauga í nóvember síðastliðnum og sögðu ráðamenn í Teheran þá að þeir væru nú það vel búnir að þeir gætu varið Íran fyrir árásum. Tilkynningin um tilraunaskotið í morgun er talin valda áhyggjum meðal ráðamanna á Vesturlöndum um hernaðarlegan metnað stjórnvalda í Íran. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra telja að ráðamenn í íslamska lýðveldinu séu að leita leiða til að smíða kjarnorkusprengjur. Ráðamenn í Teheran hafa neitað því. Tilraunaskotið telja margir vera hluta af kosningabaráttu Ahmadinejads forseta en forsetakosningar verða í Íran í næsta mánuði. Tilkynnt var í morgun hverja kjörstjórn hefði valdið í framboð úr hópi 450 umsækjanda, en þar á meðal voru 45 konur. Frambjóðendurnir eru fjórir, allt karlmenn. Ahmadinejad sækist eftir endurkjöri. Tveir umbótasinnar bjóða sig einnig fram, þeir Mir-Hossein Mousavi, fyrrverandi forsætisráðherra, og Mehid Karoubi, fyrrverandi þingforseti. Fjórði frambjóðandinn er Mohsen Rezai, fyrrverandi yfirmaður sérsveitar íranska hersins. Andstæðingar Ahmadinejads í kosningunum gagnrýna hann allir fyrir slaka efnahagsstjórn og það að hann hafi lýst því yfir opinberlega að helför gyðinga sé goðsögn. Frambjóðendurnir þrír vilja allir milda utanríkisstefnu Írans og leita sátta við erlend ríki sem Íranar hafa deilt við.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Fleiri fréttir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Sjá meira