Erlent

Trúarbragðaólga vegna svínaslátrunar

Óli Tynes skrifar

Þrátt fyrir aðvaranir Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðasamtaka ákváðu stjórnvöld í Egyptalandi að öll svín í landinu skyldu drepin vegna H1N1 flensunnar.

Þau eru á milli þrjú- og fjögurhundruð þúsund talsins.

Ekkert tilfelli hinnar svokölluðu svínaflensu hefur fundist í Egyptalandi og heilbrigðisyfirvöld hvarvetna í heiminum hafa sagt að engin hætta stafi af svínum.

Svínahirðarnir eru upp til hópa kristnir sorphirðumenn sem láta svínin ganga laus í sorpinu.

Kjötið selja þeir mest til annarra kristinna manna, þar sem múslimar líta á svín sem óhrein dýr.

Bláfátækir sorphirðarnir hafa því orðið fyrir miklum búsifjum þar sem bæturnar sem þeir fá fyrir svínin eru mun lægri en þeir geta fengið fyrir þau á markaði.

Íbúar Egyptalands eru um sjötíu milljónir talsins. Af þeim eru um tíu prósent kristin en hinir eru múslimar.

Sambúð þessara tveggja trúarhópa er yfirleitt með ágætum en nú þykir kristnum að sér vegið.

Talsmaður persónuverndar í Egyptalandi, sem raunar er múslimi hefur hinsvegar áhyggjur af því að trúbræður hans kunni að bregðast við með ofstopa.

Hann telur afar óheppilegt að kristnir bræður hans séu með þessu óbeint tengdir við hugsanlega mannskæðan faraldur.

Slíkt geti leitt til ótta, haturs og ofbeldisverka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×