Uppstokkun í Bretlandi 6. júní 2009 02:00 Hoon og hutton Varnarmálaráðherrann John Hutton og samgönguráðherrann Geoff Hoon sögðu báðir af sér embætti í gær. Þeir bættust þannig í hóp þingmanna og ráðherra Verkamannaflokksins sem sagt hafa af sér á síðustu dögum. fréttablaðið/ap
Breski forsætisráðherrann Gordon Brown ætlar ekki að segja af sér embætti. Sex ráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn hans á síðustu dögum. John Hutton varnarmálaráðherra og Geoff Hoon samgönguráðherra sögðu báðir af sér í gær. Afsagnir þeirra í gær komu í kjölfar afsagnar James Purnell atvinnumálaráðherra á fimmtudagskvöld. Áður höfðu Hazel Blears sveitarstjórnarráðherra og Jacqui Smith innanríkisráðherra sagt af sér ráðherradómi. Paul Murphy, ráðherra gagnvart Wales, hefur einnig sagt af sér. Við afsögn sína hvatti Purnell forsætisráðherrann til að segja af sér embætti. Hann segir nauðsynlegt að hleypa nýju fólki að til að forðast algjöran ósigur Verkamannaflokksins í næstu kosningum. Hutton og Hoon lýstu hins vegar báðir yfir stuðningi við Brown. Nokkrir þingmenn og svokallaðir undirráðherrar hafa einnig sagt af sér á undanförnum dögum. Þeirra á meðal var Evrópuráðherrann Caroline Flint, sem sagði í afsagnarbréfi sínu að Brown hefði komið fram við hana og fleiri konur eins og skraut. Verkamannaflokkurinn tapaði fylgi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru á fimmtudag. Flokkurinn missti meirihluta í þónokkrum héröðum, en bæði Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndir demókratar bættu við sig fylgi. Kosið var til Evrópuþingsins við sama tækifæri, en úrslit úr þeim kosningum verða ekki gerð opinber fyrr en á sunnudagskvöld. Í kjölfar kosninganna gerði Gordon Brown forsætisráðherra viðamiklar breytingar á ríkisstjórn sinni, eins og búist hafði verið við. Alistair Darling fjármálaráðherra hélt embætti sínu, þrátt fyrir að hafa sætt mikillar gagnrýni undanfarið. Brown sagði á blaðamannafundi í gær að ósigurinn í kosningunum væri vissulega slæmur en hann og ríkisstjórn hans væru staðráðin í að halda áfram að þjóna þjóðinni fyrst og fremst. kjartan@frettabladid.is thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira